Inniheldur Silica Mud Mask (100 ml) og Algae Mask (75 ml).
Fullkomin blanda sem gefur fallega og geislandi húð. Hinn þekkti kísilmaski Bláa Lónsins, Silica Mud Mask, er djúphreinsandi og styrkjandi maski sem færir húðinni frísklegt og jafnt yfirbragð. Berið kísilmaskann á andlit og háls (hreina húð) en forðist augnsvæðið. Látið bíða í 5-10 mínútur. Hreinsið af með volgu vatni. Þörungamaskinn, Algae Mask, inniheldur virka þörunga lónsins. Maskinn nærir neðstu lög húðarinnar, lyftir og eykur ljóma. Dregur úr sýnilegum hrukkum og fínum línum. Berið jafnt lag af þörungamaskanum á andlit og háls en forðist augnsvæðið. Látið bíða í 5-10 mínútur. Hreinsið af með volgu vatni. Mælt er með að nota tvennuna 2-3 sinnum í viku.
Ofnæmisprófað Án parabena Án ilmefna
Notið saman eða hvort í sínu lagi:
Berið Silica Mud Mask á hreint andlit og háls, forðist augnsvæðið. Látið bíða í 5-10 mín. Maskinn hvítnar á meðan. Skolið af með volgu vatni og þerrið varlega.
Berið Algae Mask ríkulega á andlit og háls en forðist augnsvæðið. Látið bíða í 5-10 mín. Skolið af með volgu vatni og þerrið gætilega. Ljúkið meðferðinni með því að bera á ykkur uppáhalds Blue Lagoon andlitskremið.