Prófaðu alla fjóra maskana okkar á verði þriggja. Maskar sem gefa húðinni frísklegt yfirbragð og endingargóðan ljóma. Notaðu þá saman og njóttu allra þeirra kosta sem húðvörur Bláa Lónsins búa yfir. Eða upplifðu einstaka eiginleika hvers maska fyrir sig. Lava Scrub maskinn jafnar áferð húðarinnar og endurnýjar hana. Kísilmaskinn djúphreinsar og styrkir varnir húðarinnar. Þörungamaskinn endurnýjar, örvar kollagenframleiðslu og veitir húðinni æskuljóma. Mineral Mask er öflugur rakamaski sem hægt er að nota yfir nótt. Settið inniheldur: Lava Scrub 100 gr – Silica Mud Mask 100 ml – Algae Mask 75 ml – Hydrating Mask 100 ml.
Veljið vöru fyrir hvert tilefni eða notið alla saman í þessari röð: Lava Scrub, Silica Mud Mask, Algae Mask og svo Hydrating Mask.
Ofnæmisprófað Án parabena Án ilmefna
Lava Scrub: Dökkur kornaskrúbbur, unninn úr hrauni, leysir innri krafta húðarinnar úr læðingi. Notkun: Berið á andlitið með rökum fingrum og nuddið létt. Forðist augnsvæðið. Hreinsið af með ylvolgu vatni.
Silica Mud Mask: Hvíti kísilmaskinn, sem er náttúrulegur og auðkennandi fyrir Bláa Lónið, djúphreinsar, styrkir og jafnar áferð húðarinnar. Notkun: Berið á hreina húð og forðist augnsvæðið. Látið bíða í 5-10 mínútur og skolið af með ylvolgu vatni.
Algae Mask: Náttúrulegur þörungamaski sem inniheldur einstaka þörunga Bláa Lónsins. Maskinn endurnærir og eykur ljóma húðarinnar á augabragði og dregur úr sýnilegum fínum línum og hrukkum. Berið á hreina húð og forðist augnsvæðið. Látið bíða í 5-10 mínútur og skolið af með ylvolgu vatni.
Hydrating Mask: Rakamaski fyrir andlit - inniheldur steinefnaríkan jarðsjó Bláa Lónsins. Öflugur rakagjafi sem gefur húðinni líflegra yfirbragð. Berið á hreina húð. Látið bíða í 10-20 mínútur, eða notið maskann yfir nótt. Hentar öllum húðgerðum.